Kaffihlaðborð
Áskaffi í Héðinsminni býður upp á kaffihlaðborð:
- Fyrstu helgina í júní, júlí, ágúst, september
- Laugardaga og sunnudaga frá 14 – 18
- Verð: 3.900 krónur á mann
- Börn yngri en 12 ára: 2.000 krónur
Kaffihlaðborð Áskaffi
Hefðbundið íslenskt góðgæti eins og hjá ömmu
Kaffihlaðborðin okkar hafa verið mjög vinsæl og þeim vel tekið. Þú þarft ekki að panta borð, en hópar yfir 25 manns þarf að bóka, vinsamlegast senda okkur línu á askaffi@askaffi.is
Aðrir viðburðir eru tilfallandi og hafa t.d. verið í Sæluviku Skagafirðinga, jólahlaðborð og haustveisla fyrsta vetrardag svo fylgstu með.

Kaffihlaðborð

Sherryterta Herdísar

Brauðterta

Kaffihlaðborð

Kaffi /Te og pönnukaka

Heitt súkkulaði

Eins og hjá ömmu

