
Kaffi / te og pönnukaka

Eins og hjá ömmu

Serríterta Herdísar

Heitt súkkulaði og með því

Fiskisúpa Herdísar

Gúllassúpa Herdísar

Kjötsúpa Herdísar

Gamaldags matur / Smakk diskur

Kaffihlaðborð

Hádegishlaðborð

Héðinsminni er einstaklega heppilegt fyrir tónlistarflutning. Skagfirski kammerkórinn er með söngæfingar þar einu sinni í viku, frá hausti til vors.

Veislusalurinn í Héðinsminni tekur að hámarki um 80 manns í sæti. En hámarksfjöldi gesta í húsið er 140 manns.

Ef áhugi er fyrir því að leigja Héðinsminni til veisluhalda þá er það velkomið.
Leigan er 75.000 kr. fyrir helgina, þ.e. frá kl.12:00 á föstudegi til kl.12:00 á sunnudag frá 1.júní 2024.
Einnig er velkomið að leigja fyrir fundi og fleira. Leitið tilboða.
Innifalið í leigugjaldi er afnot af eldhúsi og þrif á brottfarardegi.
Vantar þig borðdúka í veisluna? Leigan er 3.500 kr. á stk. Þvottur innifalin.
Hámarksfjöldi gesta í gistingu er 10 manns.
Umgengnisreglur og nánari upplýsingar fást þegar komið er á staðinn.

Árið 2024 býður Áskaffi góðgæti upp á árstíðarbundna matarupplifun, fyrsta og síðasta vetrardag, í júnílok og á vetrarsólstöðum.
Þessi árstíðarbundna matarupplifun felst í gómsætum smáréttum sem Brynjólfur Birkir Þrastarson matreiðslumaður og Auður Herdís eigandi Áskaffis góðgætis reiða fram.

Tertusneið
Kaka og kaffi eru eftirsótt fyrir alla

Smáréttadiskur
Hægt er að panta disk með smáréttum fyrir hópa

Súpa og brauð
Súpa og brauð fyrir hópa
Tökum á móti skipulögðum ferðahópum og vinahópum
Áskaffi góðgæti tekur á móti skipulögðum ferðahópum og vinahópum sem vilja koma og þiggja hádegisverð, kaffiveitingar eða kvöldverð.
Súpur eru vinsælar í hádeginu og kaffi og sykurpönnukaka ásamt kleinu í miðdagskaffi. Þér er velkomið að hafa samband í síma 6996102 eða hér í gegnum vefsíðuna mína og fá tilboð í veitingar.
Opnunartími sumarið 2024 verður aðallega um helgar og eftir samkomulagi, sjá einnig skipulagða viðburði hér á síðunni.