Kaffihlaðborð

Kaffihlaðborð í Héðinsminni Skagafirði

Klassískt íslenskt kaffihlaðborð Áskaffi í Héðinsminni!

Helgina 6. og 7. júní bjóðum við ykkur velkomin í sannkallaða kaffiveislu eins og hún gerist best! Áskaffi er í Héðinsminni þar sem borðin munu svigna undan klassísku, íslensku bakkelsi.

Ef þig langar í ósvikna sveitastemningu, ilm af kaffi og kökur sem minna á bestu minningarnar úr ömmubakstri, þá máttu ekki láta þessa helgi framhjá þér fara.

 Hvenær: Laugardaginn 6. júní og sunnudaginn 7. júní.

 Hvar: Í Héðinsminni Skagafirði.

Hvað er í boði? Nýsteiktar pönnukökur, skonsu brauðtertur, dýrindis rjómatertur, kleinur og allt það klassíska sem fyllir hjartað (og magann) af hlýju. Og að sjálfsögðu nóg af rjúkandi kaffi!

Taktu fjölskylduna, vinina með í sunnudagsbíltúr. Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur og eiga dásamlega helgi saman.

Verð: 3.900kr. á mann fyrir 12 ára og eldri, 2.000 kr. fyrir yngri.

Húsið opnar kl. 14:00 báða dagana.

Hlökkum til að sjá ykkur!


Fylgstu með askaffi.is

Fáðu tilkynningu um nýja viðburði senda í tölvupósti

Scroll to Top