Fréttir

Fréttir

Sælkera- og söguferðir

Ferð um Skagafjörð með leiðsögn heimamanna. Við hittum bændur og smáframleiðendur, lærum um sveitalífið og smökkum á kræsingum unnum úr staðbundnu hráefni. Upplifum sveitastemninguna, góm- sætan mat og heyrum sögur sem lifa. Ferðirnar eru í samstarfi við Crisscross matarferðir. Nánari upplýsingar og pantanir á www.askaffi.is, í síma 6996102 eða askaffi@askaffi.is

Fréttir

Verslunarmannahelgin í Héðinsminni Skagafirði.

Ekta veisla – kaffihlaðborð. Með allskonar brauði, kökum og tertum sem Herdís hefur verið að dunda við og skemmta sér að útbúa að undanförnu. Gamaldags og líka eitthvað nýtt sem góðir gestir vonandi geta notið í huggulegu umhverfi í félagsheimilinu Héðinsminni í Skagafirði. Verðin eru 3.900 kr. fyrir 12 ára og eldri, 2.000 kr. fyrir yngri. Verið hjartanlega velkomin um verslunarmannahelgina í Skagafjörð.

Fréttir

Veisla framundan?

Ef þig langar að bregða þér af bæ og komast í fallegt og gott kaffihlaðborð eða borða heimilislegan mat í huggulegu umhverfi þá er Héðinsminni rétti staðurinn fyrir þig og þinn hóp. Áskaffi góðgæti framleiðsla þar sem við vinnum með hráefni úr héraði og frá Smáframleiðendum matvæla í Skagafirði. Ekki hika við að panta fyrir hópinn þinn. Velkomið að hafa samband hér á síðunni eða hringja í síma 6996102. Kveðja góð, Herdís

Fréttir

Sæluvikan í Héðinsminni

Opnun listasýningar í Héðinsminni laugardaginn 26. apríl Kl. 14:00 Margir þekkja Söru Jónu Emilíu sundkonu og listakonu og nú gefst tækifæri til að skoða vatnslita frummyndirnar af kortunum hennar sem verða til sýnis og sölu í félagsheimilinu Héðinsminni Skagafirði. Opið í sæluviku alla daga frá kl. 14-17 Veitingar til sölu, kaffi og tertusneið. Verið velkomin

Fréttir

Það er posi á staðnum

Já til þess að það sé nú alveg á hreinu þá er líka hægt að greiða með greiðslukortum hér í Héðinsminni. Verið ávallt velkomin. Kveðja, Herdís.

Fréttir

Veisluhöld

Langar þig að halda veislu eða mannfagnað? Hér í Héðinsminni eru salur fyrir um 100 manns í sæti sem þú getur leigt með borðdúkum og skrauti. Velkomið að gera tilboð í veitingar ef óskað er hvort sem það eru kaffiveitingar eða matarveislur. Leitið upplýsinga hjá Herdísi í síma 6996102 eða sendi tölvupóst á kompan@simnet.is

Markaður í Héðinsminni
Fréttir

Markaður – notað og nýtt

Opið 1.sept. – 8.sept. frá kl. 15-18 alla dagana í félagsheimilinu Héðinsminni Skagafirði. Allskonar varningur til sölu. Endilega koma við og kíkja á hvað væri hægt að nota áfram og nýta betur. Það verður líka hægt að njóta þess að setjast niður og fá sér kaffi og tertusneið eða 4 smábita á 1.650 kr. Ef þú hefur áhuga á að vera með söluvörur endilega hafðu samband við Herdísi í síma 6996102, leiga fyrir hvert borð 2.500 kr. Verið velkomin í Héðinsminni.

Héðinsminni
Fréttir

Opnunartími

Opið frá kl. 15-18 alla daga til 13. ágúst 2024. Verið velkomin í Héðinsminni Skagafirði.

Fréttir

Myndsaumur – síðasti sýningardagur

Allra síðasti sýningardagur verður 7. júlí frá kl. 14:00 – 18:00 með útsaumsmyndum Sigríðar Sigurðardóttur. Á þessari sýningu eru glæsilegar útsaumsmyndir og reflar sem flest eru saumuð með íslenska krosssaumnum. Það eru ekki margir sem búa til listaverk með því að sauma út með nál og ullarþræði eins og Sirrí gerir. Myndirnar eru í einkaeigu og margar þeirra segja sögur eigandans. Á sýningunni getum við fengið að njóta og haft gaman af. Kaka og kaffi á 1.650 kr. eða heitt súkkulaði og rjómapönnukaka á 1.950 kr. Verið velkomin í Héðinsminni Skagafirði.

Fréttir

Sumarveisla 28. júní

Brynjólfur Birkir matreiðslumaður setur upp 4 rétta matarveislu úr héraði, ostar í forrétt, í kjölfarið fylgja tómatar, í aðalrétt bjóðum við nautakjöt og jarðaber ma. í eftirrétt verður það sem gestir snæða og eiga góða kvöldstund með okkur í Héðinsminni. 12.900 kr.  á mann, 1 drykkur innifalinn, húsið opnar kl. 18 og borðhald hefst kl. 19. Borðapantanir í síma 6996102. Verið hjartanlega velkomin.

Scroll to Top