Áskaffi dagsferðir

Áskaffi hefur verið viðurkenndur leyfishafi dagsferða síðan 2019 og býður gesti velkomna í Skagafjörð í einstaka upplifun þar sem sagan lifnar við.

Skagafjörður er eitt merkasta menningarsvæði Íslands – land hesta, sagna, kirkjustaða og sterkra matarhefða. Í ferðum okkar leggjum við ríka áherslu á að maturinn komi beint úr héraði og að gestir fái að hitta fólkið sem býr og starfar í sveitinni.

Við leggjum hjartað í persónulega þjónustu og vandaða skipulagningu svo menning, saga og staðhættir njóti sín til fulls í hverri ferð.

Dagsferðir um matarslóðir Skagafjarðar

Við bjóðum upp á fjölbreyttar dagsferðir þar sem gestir fá að kynnast ríkri matarmenningu héraðsins. Á ferð okkar um matarslóðir Skagafjarðar heimsækjum við bændur og handverkshús sem leggja metnað sinn í að nýta ferskt hráefni úr heimabyggð, allt frá hágæða lambakjöti yfir í sultur og osta.

Ferðirnar eru bæði ánægjulegar fyrir bragðlaukana og jafnframt veita þær dýpri innsýn í sögu og hefðir svæðisins. Hvort sem notið er dýrindis máltíðar í notalegu félagsheimili eða keyptar afurðir beint frá býli, þá er upplifunin lituð af þeirri gestrisni og þeim gæðum sem einkenna skagfirska matarframleiðslu.

Rauði þráður ferðanna er matarupplifun. Hér er ætlunin að njóta, ekki þjóta. Svæðistengd ferðaþjónusta sem styður við heimamenn og mannlíf sveitarinnar.

Sælkera- og söguferðir

Við bjóðum upp á fjölbreyttar sælkera- og söguferðir með viðkomustaði víðsvegar um Skagafjörð. Þar má nefna:

Hæglæti í Skagafirði

7 klst dagsferð - á fimmtudögum - Innifalið:  Leiðsögn, bíll, bílstjóri, aðgangur og allar veitingar.

Á Sturlungaslóðum

8 klst dagsferð - á laugardögum - Innifalið: Leiðsögn, bíll, bílstjóri, aðgangur og allar veitingar.

Norðurstrandarleiðin

9 klst dagsferð - á laugardögum - Innifalið: Leiðsögn, bíll, bílstjóri,aðgangur og allar veitingar.

Hæglætisferðir með heimafólki í Skagafirði

Áskaffi býður hæglætis dagsferðir þar sem við förum af alfaraleið og heimsækjum sögustaði, sjávarþorp og framleiðendur sem skapa einstaka upplifun.

Í dagsferðum okkar leggjum við áherslu á:

  • lítil hópferð – meiri gæði
  • sögur staðanna
  • vandaðar veitingar
  • rólegt og notalegt ferðalag
  • fróðleg og lifandi leiðsögn
  • öryggi og fagmennsku
Hvort sem ferðalagið liggur um sveitirnar eða sjávarþorp, eins og Hofsós eða um sögustaði eins og Hóla í Hjaltadal gefst gestum tími til að njóta, læra og upplifa.

Hjá okkur snýst ferðalagið ekki bara um að fanga augnablikið á mynd,
heldur að taka sögurnar, bragðið og stemninguna með sér heim.

Fyrir brottför

Gott að vita

Við mælum með að gestir hafi með sér:

Hér gildir að njóta en ekki þjóta. Ferðirnar eru á rólegu nótunum og henta fullkomlega öllum aldurshópum. Frábær ferðamáti fyrir unga og áhugasama, fullorðna og eldri gesti sem kunna að meta gæðastundir.

Bókanir og skilmálar

Þegar þú hefur valið þér áhugaverða ferð, þá er um að gera að tryggja sér sæti. Á bókanir og skilmálar, finnur þú allar upplýsingar um bókun ferðar, greiðslu staðfestingargjalds, afbókanir og aðra skilmála. Vinsamlegast kynntu þér skilmálana, svo allir geti notið ferðarinnar til hins ítrasta.

Samstarf við Crisscross matarferðir

Áskaffi vinnur í nánu samstarfi við Criscross matarferðir um skipulagningu og sölu á tveimur af okkar vinsælustu ferðum sem sameina matarmenningu og upplifun í Skagafirði. Þessar ferðir eru í sölu hjá Criscross og henta vel fyrir einstaklinga og smærri hópa sem vilja njóta þess besta sem svæðið hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar um þessar ferðir, verð og bókanir má finna á ensku á vef Crisscross matarferða.

Criss Cross Food Tours

Töfrar Skagafjarðar​

Ferðin hefst og endar á Akureyri og býður þátttakendum að skoða og smakka gómsæt matvæli úr matarkistu Skagafjarðar. Við heimsækjum bóndabæi og listagallerí, hittum smáframleiðendur og njótum matar úr héraði undir leiðsögn heimamanna.

Eldað eins og hjá ömmu

3ja klukkustunda námskeið þar sem þátttakendur elda heiðarlega íslenska sveitamáltíð frá grunni undir handleiðslu Auðar Herdísar, eiganda Áskaffi. Námskeiðið fer fram í hinu sögufræga félagsheimili Héðinsminni og er kjörin matarupplifun fyrir vini og fjölskyldur.

Þjónusta Áskaffis

Hópar

Heimsókn í Akrabæinn - Hádegisverður - Kaffiveitingar - Kvöldverður

Scroll to Top