Norðurstrandarleiðin í Skagafirði

Hvenær

Á laugardögum, 25.júlí, 8.ágúst,
12.sept. og 3.okt. 2026

Brottför

09:30
eða á öðrum umsömdum tíma

Upphafsstaður

Safnahúsið
á Sauðárkróki

Lengd

8 klst

Hópastærð

Lágmarksfjöldi: 10 manns
Hámarksfjöldi 18 manns

Verð

Verð pr. mann:
39.900 krónur

Leiðsögn

Kristín Sigurrós Einarsdóttir
forstöðukona Héraðsbókasafns

Innifalið

Leiðsögn, bíll, bílstjóri,
aðgangur og allar veitingar.

Sögur, matur og sjávarþorp á Norðurstrandarleið í Skagafirði

Það er eitthvað alveg sérstakt við norðlenska loftið, sögurnar og matinn sem verður til úr héraðshráefni af ástríðu og metnaði. Vertu með okkur í ríkulegri dagsferð þar sem við ferðumst á milli sögulegra staða, smökkum á handverkskræsingum beint frá býli og njótum magnaðs útsýnis yfir Drangey. Þetta er ekki bara ferðalag – þetta er bragðgóð upplifun sem situr lengi í minni.

Sögur, matur og sjávarþorp mætast á einstakan hátt í þessari heillandi dagsferð um Norðurstrandarleiðina í Skagafirði, þar sem blámi hafsins, tignarleg fjöll og ríkuleg matarmenning héraðsins leika aðalhlutverkið.

Ferðin hefst formlega fyrir utan Safnahúsið á Sauðárkróki, elsta hús bæjarins sem geymir dýrmæta sögu svæðisins. Þaðan er lagt af stað út með firðinum þar sem sögur af fornköppum, útilegumönnum og lífsbaráttunni við hafið fylgja okkur á leiðinni norður í hina ægifögru og snjóþungu sveit, Fljótin.

Áfangastaðurinn í Fljótunum er Brúnastaðir, en þar opnast nýr heimur fyrir matgæðinga. Á þessu metnaðarfulla fjölskyldubýli fáum við að kynnast lífinu í sveitinni og heyra sögur af búskapnum, en hápunktur heimsóknarinnar er kynning og smökkun á margverðlaunuðum gæðageitaostum og öðru handverksgóðgæti sem framleitt er á staðnum.

Eftir ljúfa dvöl og einstaka bragðupplifun á Brúnastöðum er haldið til baka og beygt inn í Unadal, þar sem hrikaleg fjöll ramma inn landslagið. Þar nærumst við á líkama og sál í hinu dásamlega Dalasetri, þar sem borinn er fram ljúffengur hádegisverður matreiddur úr héraðshráefni með skagfirska gestrisni í fyrirrúmi.

Að loknum hádegisverði liggur leiðin til Hofsóss, eins elsta verslunarstaðar landsins. Þetta fallega sjávarþorp iðar af sögu og sjarma og þar dveljum við í notalegu umhverfi. Við röltum um gamla bæinn niður við höfnina skoðum við gömlu timburhúsin, fræðumst um sögu Vesturfaranna, virðum fyrir okkur hina stórbrotnu stuðlabergshleðslu í fjörunni og njótum magnaðs útsýnis yfir fjörðinn, Drangey og Málmey.

Að loknum þessum viðburðaríka og notalega degi höldum við aftur inn á Sauðárkrók og snúum heim með kviðinn fullan af kræsingum, myndavélina fulla af minningum og hjartað ríkara af sögum og menningu Norðurstrandarleiðarinnar.

Svipmyndir

Bókaðu dagsferð

Norðurstrandarleiðin í Skagafirði

Gott að vita
Fyrir hverja dagsferð er mikilvægt að vera vel undirbúinn svo upplifunin verði sem ánægjulegust. Við mælum með því að gestir kynni sér hagnýtar upplýsingar um fatnað og skó,  en allt sem er gott að vita fyrir dagsferðina má finna á upplýsingasíðunni okkar.

Bókanir og skilmálar
Sætaframboð í hæglætisferðirnar okkar er takmarkað og því er gott að tryggja sér pláss tímanlega. Til að ganga frá bókun eða kynna sér afbókunarskilmála er hægt að skoða bókanir og skilmálar áður en lagt er af stað.

Scroll to Top