Hæglæti í Skagafirði

Hvenær

Á fimmtudögum 25.júní, 9.júlí, 23.júlí,
6.ágúst, 20.ágúst, 3.sept., 17.sept., 1.okt. og 15.okt. 2026

Brottför

09:30
eða á öðrum umsömdum tíma

Upphafsstaður

Menningarhúsið
Miðgarður í Skagafirði

Lengd

8 klst

Hópastærð

Lágmarksfjöldi: 10 manns
Hámarksfjöldi 18 manns

Verð

Verð pr. mann:
39.900 krónur

Leiðsögn

A. Herdís Sigurðardóttir
eigandi Áskaffi

Innifalið

Leiðsögn, bíll, bílstjóri,
aðgangur og allar veitingar.

Sveitalíf, sögur og smakk í Skagafirði

Skelltu þér í ógleymanlega dagsferð um sveitir Skagafjarðar! Við bjóðum ykkur velkomin í notalega hæglætisferð með heimafólki þar sem norðlensk gestrisni er í fyrirrúmi. Hér skiljum við stressið eftir heima; markmiðið er einfaldlega að njóta stórfenglegs landslags og dásamlegs staðbundins hráefnis í rólegheitunum.

Ferðin er hönnuð fyrir þau sem vilja hægja á sér, njóta augnabliksins og kynnast íslensku sveitalífi eins og það gerist best. Leiðsögumaður ferðarinnar er innfæddur Skagfirðingur sem rekur kaffihúsið Áskaffi. Með brennandi áhuga á sögu héraðsins og menningararfi mun leiðsögumaðurinn leiða gesti um leyndardóma fjarðarins, segja lifandi sögur af mönnum og málefnum og tryggja að hlýjar móttökur mæti öllum á hverjum áfangastað.

Frá Varmahlíð liggur leiðin um Lýtingsstaðahrepp, sem fyrrum hét, þar sem við hittum bændur og framleiðendur á heimaslóðum. Við heimsækjum fyrst Lýtingsstaðabændur, sem bjóða upp á einstakar og fallegar sýningar um íslenska hestinn og fjárhundinn. Þar fáum við innsýn í hvernig þessi dýr hafa fylgt þjóðinni í gegnum aldirnar og heyrum skemmtilegar sögur af samspili manns og náttúru.

Þaðan höldum við í Rúnalist, sem er sannkölluð vin fyrir áhugafólk um íslenska hönnun og matarmenningu. Staðurinn selur einstakt handverk og gæðavörur frá litlum smáframleiðendum matvæla víðs vegar af Íslandi. Við gefum okkur góðan tíma til að skoða okkur um og smakka á dýrindis framleiðslu sem kitlar bragðlaukana.

Eftir líflegt spjall og smakk er kærkomið að setjast niður og nærast. Við snæðum ljúffengan hádegisverð í afslöppuðu umhverfi og einstakri hlýju á kaffihúsinu á Starrastöðum, þar sem staðbundið hráefni og alúð mætast í hverjum bita.

Eftir hádeigisverð er afslappandi útsýnistúr um Steinstaðarhverfi og fram hjá Stapa með stoppi hjá Reykjakirkju áður en keyrt er um Efri byggðina til baka með viðkomu hjá Víðimýrarkirkju.

Við ljúkum svo þessum dásamlega degi í Stefánsstofu í Miðgarði. Þar njótum við fagurs og stórfenglegs útsýnis yfir fjörðinn á meðan við gæðum okkur á ljúffengu, heimabökuðu bakkelsi. Þetta er fullkominn endapunktur á degi þar sem samvera, sögur, bragðlaukarnir og rólegheitin fá að njóta sín til fulls.

Svipmyndir

Bókaðu dagsferð

Hæglæti í Skagafirði

Gott að vita
Fyrir hverja dagsferð er mikilvægt að vera vel undirbúinn svo upplifunin verði sem ánægjulegust. Við mælum með því að gestir kynni sér hagnýtar upplýsingar um fatnað og skó,  en allt sem er gott að vita fyrir dagsferðina má finna á upplýsingasíðunni okkar.

Bókanir og skilmálar
Sætaframboð í hæglætisferðirnar okkar er takmarkað og því er gott að tryggja sér pláss tímanlega. Til að ganga frá bókun eða kynna sér afbókunarskilmála er hægt að skoða bókanir og skilmálar áður en lagt er af stað.

Scroll to Top