Viðburðir

Viðburðir

Leyfisbréfin eru nokkur

Til upplýsinga. ahsig ehf. hefur nokkur starfsleyfi hér í Héðinsminni, hér gefur að líta nokkur þeirra. Verið velkomin í Skagafjörð. Kveðja, Herdís.

Viðburðir

Jólahlaðborð í Héðinsminni Skagafirði

Fjölbreytt framleiðsla frá Herdísi og Brynjólfi Birki. Matarhandverk sem unnið er af ánægju og vandað til verka. Velkomið að panta bæði fyrir einstaklinga og hópa. Verð 12.900 kr. Athugið aðeins þessar dagsetningar en við skoðum hvað við getum gert fyrir hópa fleiri en 25 manns. Verið velkomin í Héðinsminni Skagafirði. Kveðja, Herdís.

Viðburðir

Haustveisla í Héðinsminni Skagafirði

Verið hjartanlega velkomin til Herdísar, Áskaffi góðgæti og Brynjólfs Birkis matreiðslumanns. Nú haustar hratt og veturinn handan við hornið og við ætlum að bjóða uppá glænýja framleiðslu úr héraði sem verður gæs, grænmeti, lambakjöt og súkkulaði í 4 rétta matarveislu og bragðlaukarnir kætast. Verðið er 12.900 kr. á mann.  

Viðburðir

Fyrsti vetrardagur

Það styttist í haustveisluna hjá okkur Brynjólfi Birki matreiðslumanni, en hún verður haldin laugardaginn 26. október í Héðinsminni Skagafirði. 4 rétta matarveisla með lambakjöti, berjum og fleira góðgæti sem haustið gefur. Verðið er 12.900 kr. á mann. Borðapantanir í síma 6996102 eða á kompan@simnet.is

Viðburðir

Kaffi og kökubitar

Velkomin í kaffi og tvíbökur ásamt hjónabandssælu og lagtertubita á 1.650 kr. Einnig er í boði tertusneið með rjóma fyrir sama verð. Opið frá kl. 15-18 í Héðinsminni Skagafirði.

Viðburðir

Kaffi og kaka í Héðinsminni

Frá 23.júlí til 13. ágúst 2024 verður opið frá kl.15-18 alla daga. Þá gefst gestum tækifæri að kíkja inn í Héðinsminni og fá sér kaffi og tertusneið á 1.650 kr. Verið hjartanlega velkomin í sveitina.

Scroll to Top