Gleðilega hátíð
Gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Þakka góðar heimsóknir á árinu sem er að líða. Jólakveðja, Herdís
Gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Þakka góðar heimsóknir á árinu sem er að líða. Jólakveðja, Herdís
Jólahlaðborð í Héðinsminni föstudaginn 12. desember og laugardaginn 13.desember 2025. Fyrir hópa, 6 manns, eða fleiri í hverjum hópi. Brynjóldur Birkir matreiðslumarður töfrar fram allskonar kræsingar og við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til okkar í Héðinsminni á aðventunni. Verðið er 11.500 kr á mann Opið fyrir pantanir til 5. desember. Nánari upplýsingar í síma 6996102 eða á kompan@simnet.is Kveðja góð, Herdís
Síðasta kaffihlaðborð Áskaffi góðgæti þetta sumarið verður haldið 6. og 7. september 2025. Ekta veisla með allskonar kökum og brauði sem ég hlakka til að bjóða ykkur að smakka á og njóta. Verðið er 3.900 kr. á manninn en 2.000 kr. fyrir yngri en 12 ára. Verið hjartanlega velkomin í Héðinsminni Skagafirði. Kveðja, Herdís
Kaffihlaðborð Áskaffi góðgæti í Héðinsminni laugardaginn 6. og sunnudaginn 7. september frá kl. 14-18. Tertur, brauð og fleira góðgæti á veisluborðinu. Verð 3.900 kr. á mann en 2.000 kr. fyrir 12 ára og yngri. Verið velkomin í Skagafjörð. Kveðja, Herdís
Í sumar verður boðið uppá glæsileg kaffihlaðborð með hnallþórum og allskonar góðgæti sem Herdís eigandi Áskaffi framleiðir og gefur gestum sínum tækifæri á að koma og njóta í fallegu umhverfi í félagsheimilinu Héðinsminni í Skagafirði þar sem Áskaffi er til húsa. Kaffihlaðborðin verða fyrstu helgi í hverjum mánuði fram á haustið. Opið verður bæði laugardag og sunnudag frá kl. 14-18. Borðin svigna undan gómsætum kökum og brauði og ég bið ykkur vel að njóta. Verðið er 3.900 kr. á manninn fyrir 12 ára og eldri, 2.000 kr. fyrir yngri. Ef bókað er fyrir hóp sem telur fleiri en 20 manns þá kostar það 3.500 kr. á manninn. Síminn er 6996102 eða sendið skilaboð hér frá síðunni og ég hef samband við fyrsta tækifæri. Verið ávallt velkomin til mín í kaffihlaðborð og aðrar veitingar. Kær kveðja, Herdís
Sýningin Dulúð og vatnslitir sameinar notkun vatnslita með náttúrulegum viðfangsefnum, sem endurspegla áhuga Söru á sveitinni og náttúrunni. Verkin á sýningunni sýna dýpt og mýkt vatnslitanna og hvernig þau fanga dulúð náttúrunnar. Þetta er fyrsta einkasýning Söru Jónu Emilíu og hér eru seldar frummyndir af kortunum hennar frá 2015 – 2025. Við lengjum opnunartíma sýningarinnar og höfum OPIÐ UM HELGAR Í MAÍ Áskaffi góðgæti veitingar til sölu á meðan sýningin stendur. Verið velkomin.
Laus sæti á jólahlaðborð 7.desember í Héðinsminni Skagafirði. Allskonar góðgæti sem gestum bíðst að smakka og njóta í góðum félagsskap. 12.900 á mann Borðapantanir í síma 6996102
Langar þig í lagtertu fyrir jólin “eins og hjá ömmu”? Hafðu samband! Kv. Herdís
Í jólapakkana frá Áskaffi góðgæti. Takmarkað magn. Leitið upplýsinga í síma 6996102. Kv. Herdís
Áskaffi góðgæti í jólapakkana? Hér eru nýjungar sem að hluta til verða aðeins til í takmörkuðu magni. Eplamauk 180g 1.250 kr. Eldpiparmauk 180g 1.250 kr. Gulrótarmauk 180g 1.250 kr. Rauðkál 280g 1.250 kr. Karrísíld 280g 1.590 kr. Brúnterta, lítil 2.000 kr. Brúnterta, stærri 3.000 kr. Vínarterta með sveskjusultu, lítil 2.500 kr. Vínarterta með rabarbarasultu, lítil 2.400 kr. Vínarterta með rabarbarasultu, stærri 3.500 kr. Velkomið að setja saman pakka fyrir þig ef þú hefur áhuga. Jólapakki með lagtertubita er frábær jólagjöf, mæli með 🙂 Ekki hika við að hafa samband við mig í síma 6996102 eða með því að senda skilaboð hér á síðunni. Jólakveðja, Herdís.