Fréttir

Á Sturlungaslóð
Fréttir

Fréttatilkynning frá Áskaffi

Áskaffi góðgæti bætir ferðum með leiðsögn við starfsemi sína Áskaffi góðgæti er fyrirtæki í Skagafirði sem starfar í anda Slow food og Slow travel og leggur áherslu á gæði, ró og upplifun. Eigandi fyrirtækisins er A. Herdís Sigurðardóttir sem hefur síðustu misserin rekið Áskaffi góðgæti í félagsheimilinu Héðinsminni í fyrrum Akrahreppi en rak lengi kaffihúsið Áskaffi í Áshúsi í Glaumbæ. „Nú vil ég bjóða gestum Skagafjarðar meira en kaffi og kökur og er að hanna smáhópaferðir til að skapa upplifun sem snertir hjartað, vekur forvitni og skilur eftir góðar minningar“ segir Herdís. Saga, matur og upplifun í hjarta Skagafjarðar „Við, heimafólk í Skagafirði, leggjum áherslu á fagmennsku og gæði í hverju smáatriði. Saga, fallegt landslag, góðar veitingar og hlýleg samvera fléttast í þessum ferðum“, bætir hún við. „Við bjóðum í ferðalag þar sem sagan lifnar við og maturinn er heimafenginn“. „Hæglætisferðir með heimafólki“ Í þessum ferðum gefst gestum tækifæri til að hitta fólkið sem býr og starfar í Skagafirði, sem er land hesta, sagna, sögustaða og sterkra matarhefða. Farið verður úr alfaraleið og sveitir og sjávarþorp heimsótt. „Hvort sem ferðin liggur um sveitir eða sjávarþorp eins og Hofsós og sögustaði eins og Hóla í Hjaltadal gefst gestum tími til að njóta, læra og upplifa“, segir Herdís og bætir því við að ferðirnar muni skilja eftir sögur, myndir og minningar. Þrjár ferðir eru þegar komnar í sölu og fleiri á teikniborðinu. Á Sturlungaslóðum í Skagafirði með Sigríði Sigurðardóttur Lærdómsrík ferð um dramatíska sögu Íslands þar sem fjallað verður um stórbrotna sögu, valdabaráttu, örlög og sögustaði. Þar mun frásögnin tengjast landinu sjálfu með heimsóknum á kirkjustaði, sveitabæi, vígvelli og slóðir sem enn geyma andrúmsloft liðinna tíma. Hæglætisferð (Slow travel) frá Varmahlíð með Auði Herdísi Sigurðardóttur Hæglætisferð þar sem boðið er upp á staðbundið hráefni. Framleiðendur hágæða matvara og handverks verða heimsóttir. Þarna verður sveitalífið, sögurnar, smakk og hlýjar móttökur í hjarta Norðurlands í fyrirrúmi, umkringdar fallegu landslagi. Um norðurströndina í Skagafirði með Kristínu Sigurrós Einarsdóttur Ferðalag um Norðurströnd Skagafjarðar þar sem sagan, landslagið og matarmenning svæðisins njóta sín. Farið verður út með austanverðri strönd Skagafjarðar. Ferðin hefst og endar á Sauðárkróki. Í öllum ferðunum er miðað við 10-18 manna hópa. Ferðirnar eru skipulagðar með rólegheit að markmiði og henta vel fullorðnum sem og ungum, áhugasömum gestum. Ferðirnar eru komnar í sölu á vefsíðunni www.askaffi.is ahsig ehf. hlaut styrk frá Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra við uppbyggingu og framkvæmd „Sögu- og sælkeraferða í Skagafirði“ og kann ég þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn, segir Herdís að lokum.

HandPickedbyPickyLocals
Fréttir

Halló PICKY LOCALS

Við höfum verið valin í Handpicked Iceland fjölskylduna aftur, ánægjulegt og gaman að fá að vera með. Verið öll hjartanlega velkomin.

Fréttir

Verslunarmannahelgin í Héðinsminni Skagafirði.

Ekta veisla – kaffihlaðborð. Með allskonar brauði, kökum og tertum sem Herdís hefur verið að dunda við og skemmta sér að útbúa að undanförnu. Gamaldags og líka eitthvað nýtt sem góðir gestir vonandi geta notið í huggulegu umhverfi í félagsheimilinu Héðinsminni í Skagafirði. Verðin eru 3.900 kr. fyrir 12 ára og eldri, 2.000 kr. fyrir yngri. Verið hjartanlega velkomin um verslunarmannahelgina í Skagafjörð.

Fréttir

Veisla framundan?

Ef þig langar að bregða þér af bæ og komast í fallegt og gott kaffihlaðborð eða borða heimilislegan mat í huggulegu umhverfi þá er Héðinsminni rétti staðurinn fyrir þig og þinn hóp. Áskaffi góðgæti framleiðsla þar sem við vinnum með hráefni úr héraði og frá Smáframleiðendum matvæla í Skagafirði. Ekki hika við að panta fyrir hópinn þinn. Velkomið að hafa samband hér á síðunni eða hringja í síma 6996102. Kveðja góð, Herdís

Fréttir

Sæluvikan í Héðinsminni

Opnun listasýningar í Héðinsminni laugardaginn 26. apríl Kl. 14:00 Margir þekkja Söru Jónu Emilíu sundkonu og listakonu og nú gefst tækifæri til að skoða vatnslita frummyndirnar af kortunum hennar sem verða til sýnis og sölu í félagsheimilinu Héðinsminni Skagafirði. Opið í sæluviku alla daga frá kl. 14-17 Veitingar til sölu, kaffi og tertusneið. Verið velkomin

Fréttir

Það er posi á staðnum

Já til þess að það sé nú alveg á hreinu þá er líka hægt að greiða með greiðslukortum hér í Héðinsminni. Verið ávallt velkomin. Kveðja, Herdís.

Fréttir

Veisluhöld

Langar þig að halda veislu eða mannfagnað? Hér í Héðinsminni eru salur fyrir um 100 manns í sæti sem þú getur leigt með borðdúkum og skrauti. Velkomið að gera tilboð í veitingar ef óskað er hvort sem það eru kaffiveitingar eða matarveislur. Leitið upplýsinga hjá Herdísi í síma 6996102 eða sendi tölvupóst á kompan@simnet.is

Markaður í Héðinsminni
Fréttir

Markaður – notað og nýtt

Opið 1.sept. – 8.sept. frá kl. 15-18 alla dagana í félagsheimilinu Héðinsminni Skagafirði. Allskonar varningur til sölu. Endilega koma við og kíkja á hvað væri hægt að nota áfram og nýta betur. Það verður líka hægt að njóta þess að setjast niður og fá sér kaffi og tertusneið eða 4 smábita á 1.650 kr. Ef þú hefur áhuga á að vera með söluvörur endilega hafðu samband við Herdísi í síma 6996102, leiga fyrir hvert borð 2.500 kr. Verið velkomin í Héðinsminni.

Héðinsminni
Fréttir

Opnunartími

Opið frá kl. 15-18 alla daga til 13. ágúst 2024. Verið velkomin í Héðinsminni Skagafirði.

Fréttir

Myndsaumur – síðasti sýningardagur

Allra síðasti sýningardagur verður 7. júlí frá kl. 14:00 – 18:00 með útsaumsmyndum Sigríðar Sigurðardóttur. Á þessari sýningu eru glæsilegar útsaumsmyndir og reflar sem flest eru saumuð með íslenska krosssaumnum. Það eru ekki margir sem búa til listaverk með því að sauma út með nál og ullarþræði eins og Sirrí gerir. Myndirnar eru í einkaeigu og margar þeirra segja sögur eigandans. Á sýningunni getum við fengið að njóta og haft gaman af. Kaka og kaffi á 1.650 kr. eða heitt súkkulaði og rjómapönnukaka á 1.950 kr. Verið velkomin í Héðinsminni Skagafirði.

Scroll to Top